400 milljónirnar fóru í einkaverkefni Björgólfs 6. nóvember 2009 18:02
Skuldabréfið sem Fyrirtækjabréf Landsbankans keyptu af Björgólfi Guðmundssyni, fyrrum formanni bankaráðs Landsbankans á 400 milljónir, voru nýttar í einkaverkefni á hans vegum en ekki er ljóst hvaða verkefni um ræðir. Á vefsíðu Viðskiptablaðsins kemur fram að féð hafi verið notað til þess að fjármagna styrktarsjóð í nafni dóttur hans. Samkvæmt heimildum Vísis þá er um nokkur verkefni að ræða en ekki fékkst staðfest að féð hafi verið nýtt í minningarsjóðinn. Fyrirtækjabréf Landsbankans, síðar Landsvaki hf., keyptu skuldabréfin af Björgólfi árið 2005. Í fréttatilkynningu frá Landsbankanum kemur fram að eftir bankahrunið hafi nýir stjórnendur tekið við rekstri Landsvaka og ný stjórn skipuð. Það hafi orðið mat þeirra stjórnenda sem þá tóku við, að kaup á áðurnefndu skuldabréfi væri brot á fjárfestingarstefnu sjóðsins. Málinu hefur því verið vísað til Fjármálaeftirlitsins og rannsóknarnefndar Alþingis. Þess má geta að Björgólfur sjálfur hefur ekki réttarstöðu grunaðs manns. Óljóst er hvort Fyrirtækjabréf Landsbankans hafi mátt kaupa bréfið af einstaklingi. Samkvæmt heimildum Vísis þá fylgdi Björgólfur ráðum forsvarsmanna sjóðsins en peningarnir voru geymdir í Landsbankanum í Lúxemborg. Það fé var til tryggingar fyrir bréfið en lokaðist inni eftir bankahrun. Þegar ljóst hafi orðið að Björgólfur myndi ekki standa skil á eftirstöðvum við lokun sjóðsins hafi það verið óhjákvæmileg niðurstaða, sem meðal annars var byggð á óháðri lögfræðiúttekt, að Landsvaki yrði að bera tjónið sem af brotinu leiddi. Björgólfur var úrskurðaður gjaldþrota fyrr á árinu. Þá skuldaði hann 98 milljarða og er stærsta gjaldþrot Íslandssögunnar.
Tengdar fréttir Björgólfur Guðmundsson gaf út skuldabréfið Það var Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Landsbankans, sem gaf út skuldabréfið sem Fyrirtækjabréf Landsbankans keypti fyrir 400 milljónir árið 2005. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag var um að ræða brot á fjárfestingastefnu sjóðsins og hefur málinu verið vísað til Fjármálaeftirlitsins og Rannsóknarnefndar Alþingis. 6. nóvember 2009 16:23 Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira
Björgólfur Guðmundsson gaf út skuldabréfið Það var Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Landsbankans, sem gaf út skuldabréfið sem Fyrirtækjabréf Landsbankans keypti fyrir 400 milljónir árið 2005. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag var um að ræða brot á fjárfestingastefnu sjóðsins og hefur málinu verið vísað til Fjármálaeftirlitsins og Rannsóknarnefndar Alþingis. 6. nóvember 2009 16:23