30 milljarða tap LSR: Launþegar taka á sig tvöfalt högg 29. mars 2009 18:30
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins tapaði 30 milljörðum á síðasta ári. Launþegar á almennum vinnumarkaði taka á sig tvöfalt högg. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins birti uppgjör fyrir árið 2008 í dag. Þar kemur fram að eignir sjóðsins lækkuðu um þrjátíu milljarða á síðasta ári. Hrein eign til greiðslu lífeyris lækkaði úr 317 milljörðum í 287 milljarða. Raunávöxtun sjóðsins var neikvæð um 25%. Er þessi niðurstaða í takt við tap annarra sjóða, en lífeyrissjóðir hafa orðið mjög illa úti í fjármálahruninu. Í uppgjörinu segir að hlutabréf og víkjandi skuldabréf sem LSR átti í bönkunum hafi verið afskrifuð og sjóðurinn hafi fært niður skuldabréf í eignasafni sínu vegna óvissu um stöðu margra fyrirtækja. Starfsemi LSR skiptist í þrjár deildir: A-deild, B-deild og séreignardeild.Heildarskuldbindingar umfram eignir í A deild sjóðsins námu tæpum 47 milljörðum króna í lok árs 2008. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra gengdi lykilstöðu í stjórn sjóðsins. Hann sagði í samtali við fréttastofu á föstudag að ráðdeild hafi verið sýnd í fjárfestingum sjóðsins, en það hafi einfaldlega verið skortur á ríkisbréfum. Sérfræðingar sem fréttastofa ræddi við tóku upp að vissu marki undir með Ögmundi. Undanfarin ár var ríkissjóður jú rekinn hallalaus og því lítið um útgáfu ríkisbréfa. Helstu bréfin sem voru fáanleg með ríkisábyrgð voru bréf Íbúðalánasjóðs. LSR hefur ávallt fylgt þeim fjárfestingaramma sem lög um lífeyrissjóði kveða á um. Það sem skilur sjóðinn hins vegar frá öðrum er að hann starfar undir ríkisábyrgð. Tap sjóðsins lendir því á almenningi sem tekur á sig tvöfalt högg, tapar sínum réttindum en heldur uppi réttindum sjóðfélaga LSR. Því á sama tíma og lífeyrisréttindi á almennum vinnumarkaði skerðast halda skattgreiðendur uppi réttindum sjóðfélaga LSR.. Það hefur lengi verið álitamál hvort réttlætanlegt sé að halda úti slíku tvöföldu lífeyriskerfi, en það væri í höndum löggjafarvaldsins að breyta því fyrirkomulagi.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira