Arsenal hefndi ófaranna gegn Hull Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. janúar 2009 19:10 Robin van Persie átti stórleik í liði Arsenal í dag. Hér er hann í baráttu við Sam Ricketts, leikmann Hull. Nordic Photos / Getty Images
Arsenal vann í dag 3-1 sigur á Hull í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinn og hefndi þar með fyrir ófarirnar í september er Hull vann óvæntan 2-1 sigur á Emirates-leikvanginum. Það var Robin van Persie sem var óumdeilanlega maður leiksins en hann lagði upp öll mörk Arsenal í leiknum sem þeir Emmanuel Adebayor, Samir Nasri og Nicklas Bendtner skoruðu. Daniel Cousin skoraði mark Hull og jafnaði þar með metin í leiknum en Arsenal skoraði tvívegis undir lok leiksins. Kevin Kilbane fór beint inn í byrjunarlið Hull en hann kom frá Wigan í vikunni. Manucho, sóknarmaðurinn sem kom að láni frá Manchester United, var á bekknum en kom inn á sem varamaður undir lok leiksins. Leikurinn byrjaði nokkuð rólega en eftir hálftíma leik náði Emmanuel Adebayor að skora fyrsta mark leiksins með laglegum skalla eftir fyrirgjöf van Persie úr hornspyrnu. Skömmu síðar átti Emmanuel Eboue gott færi fyrir heimamenn en skaut framhjá úr góðu færi en ekki gerðist mikið fleira markvert í fyrri hálfleik ef frá eru talin nokkur hálffæri. Arsenal byrjaði betur í síðari hálfleik en náði ekki að færa sér yfirhöndina í nyt. Manucho kom inn á sem varamaður snemma í síðari hálfleik og það virtist lífga nokkuð upp á leik Hull. Það var svo á 65. mínútu að heimamenn náðu að jafna metin og var Daniel Cousin þar að verki með skalla eftir fyrirgjöf Bernard Mendy. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, ákvað að skella Nicklas Bendtner inn á í sóknina og voru gestirnir vissulega líklegri til að skora næsta mark í leiknum. Það gerðist svo á 82. mínútu er Samir Nasri afgreiddi knöttinn í netið með laglegu skoti eftir glæsilegan undirbúning van Persie. Arsenal innsiglaði svo sigurinn er van Persie lagði upp sitt þriðja mark í leiknum eftir laglegan samleik við Bendtner sem átti ekki í vandræðum með að skora af stuttu færi. Van Persie virtist þó vera rangstæður þegar hann fékk sendinguna inn fyrir vörn Hull. Bendtner átti svo skalla í stöngina í uppbótartíma en þar við sat og niðurstaðan 3-1 sigur Arsenal. Liðið er enn í fimmta sæti deildarinnar, nú þremur stigum á eftir Aston Villa. Hull er í áttunda sæti, enn með 27 stig.
Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Donni þarf líka að fara í aðgerð Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Alfreð þurfti að breyta plönum hratt fyrir stund hefndar Handbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Fleiri fréttir Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Sjá meira