Heildaraflinn í ágúst minnkar um 11,9% milli ára 15. september 2009 09:13
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum ágústmánuði, metinn á föstu verði, var 11,9% minni en í ágúst 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 5,7% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflinn í ágúst 2009 var 112.550 tonn samanborið við 142.123 tonn í sama mánuði árið áður. Botnfiskafli dróst saman um rúm 3.000 tonn frá ágúst 2008 og nam tæpum 32.000 tonnum. Þar af var þorskaflinn tæp 13.000 tonn, sem var tæpum 4.000 tonnum meira en árið áður. Ýsuaflinn nam tæpum 6.000 tonnum sem er um 3.000 tonnum minni afli en í ágúst 2008. Ufsaaflinn dróst saman um 2.000 tonn á milli ára og nam um 6.000 tonnum en 3.000 tonn veiddust af karfa, sem er um 1.600 tonnum minna en í ágúst 2008. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 78.000 tonnum sem er um 26.000 tonnum minni afli en í ágúst 2008. Síldaraflinn stóð nokkurn vegin í stað milli ára og nam rúmum 63.000 tonnum. Um 13.000 tonn veiddust af makríl, sem er tæpum 27.000 tonnum minni afli en í ágúst 2008. Flatfiskaflinn var tæp 2.000 tonn í ágúst og jókst um 192 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 851 tonni samanborið við 1.158 tonna afla í ágúst 2008.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira