Vildi Gerrard bara hlusta á Phil Collins? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. desember 2008 09:51 Gefið er í skyn að tónlist Phil Collins hafi verið helsta deiluefnið á The Lounge Inn á sunnudagskvöldið. Nordic Photos / Getty Images & AFP
Enskir fjölmiðlar eru stútfullir af sögum um hvað gerðist á skemmtistaðnum þar sem Steven Gerrard var handtekinn á sunnudagskvöldið. Það hefur nú fengist staðfest að Gerrard hefur verið kærður fyrir líkamsárás ásamt tveimur öðrum og þarf hann að koma fyrir dómstóla í næsta mánuði vegna þessa. Honum var sleppt úr haldi nú í nótt. Það er vitað að plötusnúður skemmistaðarins, The Lounge Inn, var færður á sjúkrahús eftir að hann hlaut áverka í andliti. Talið er að hann hafi hlotið skurð á enni og misst tönn en einn þremenninganna braut flösku á höfði hans. „Þetta tók ekki nema tíu sekúndur. Það varð allt vitlaust og staðurinn tæmdist á nokkrum sekúndum," sagði eitt vitni í samtali við enska fjölmiðla. Fórnarlambinu, Marcus McGee, hafði verið ætlað að sjá um tónlistina á staðnum um kvöldið. Hann er 34 ára gamall tveggja barna faðir og góður vinur eiganda staðarins. Vitni halda því fram að fyrr um kvöldið hafi einhver orðaskipti átt sér stað á milli McGee og vina Gerrard. Það hafi svo soðið upp úr þegar að Gerrard sjálfur bað um að fá að stjórna tónlistinni en McGee varð ekki við þeirri bón. Enskir fjölmiðlar segja að tónlistarmaðurinn Phil Collins sé í miklu uppáhaldi hjá Gerrard, sem og Coldplay. Verði Gerrard fundinn sekur um grófa líkamsárás gæti hann átt yfir höfði sér fimm ára vist í fangelsi sem verður þó að teljast afar ólíklegt. Einn viðmælandi ensku fjölmiðlanna segir að dóttir sín hafi verið á sama stað og Gerrard þetta sama kvöld að halda upp á 35 ára afmæli sitt. „Gerrard virtist vera í mjög góðu skapi og alls ekki drukkinn," sagði faðirinn. „Þegar hann fékk að vita að dóttir mín ætti afmæli keypti hann kampavínsflösku handa henni."
Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest | Sækir Iraola fyrsta deildarsigurinn? PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjá meira