Enski boltinn

Stutt í að Eduardo spili

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eduardo í leik með Arsenal.
Eduardo í leik með Arsenal. Nordic Photos / Getty Images
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að stutt sé í að Eduardo geti spilað með liði félagsins á nýjan leik.

Eduardo meiddist illa í febrúar síðastliðnum er hann brotnaði á fæti og ökkla. Óttast var að ferli hans kynni að vera lokið.

„Hann hefur verið að spila á æfingum en hann þarf að fá að spila fleiri leiki núna," sagði Wenger.

Eduardo er 25 ára Brasilíumaður sem er með króatískt ríkisfang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×