Enski boltinn

Benitez kennir landsliðinu um meiðsli Torres

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rafael Benitez, stjóri Liverpool.
Rafael Benitez, stjóri Liverpool. Nordic Photos / Getty Images
Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir að ein helsta ástæðan fyrir tíðum meiðslum Fernando Torres sé þátttaka hans með spænska landsliðinu.

Torres tognaði aftan í lærvöðva í leik Liverpool og Marseille í Meistaradeild Evrópu í vikunni og er það í fimmta sinn á undanförnum sextán mánuðum sem hann hlýtur slík meiðsli.

„Hann hefur þrisvar komið aftur meiddur frá landsliðinu," sagði Benitez í samtali við enska fjölmiðla. „Það er eitthvað sem við þurfum að skoða betur. Við vitum að þeir eru að gera eitthvað sem hentar leikmanninum illa. Við erum ekki ánægðir með þessa stöðu mála."

Torres verður frá næstu 2-3 vikurnar vegna meiðslanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×