Heiðar: Félagið ætlar sér stóra hluti Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. nóvember 2008 11:00 Heiðar Helguson fagnar marki í leik með Bolton. Nordic Photos / Getty Images
Heiðar Helguson mun í dag ganga til liðs við enska B-deildarliðið QPR á lánssamningi frá úrvalsdeildarfélaginu Bolton þar sem hann hefur fá tækifæri fengið að undanförnu. Til greina kemur að QPR kaupi Heiðar í janúar næstkomandi en þangað til fær hann tækifæri til að sýna sig og sanna hjá félaginu. „Mér líst mjög vel á félagið. Þarna eru tveir leikmenn sem voru með mér hjá Watford og svo þekki ég marga þeirra frá því að ég spilaði gegn þeim á sínum tíma," sagði Heiðar í samtali við Vísi í dag. Bernie Ecclestone og Flavio Briatore eru meirihlutaeigendur félagsins en þeir eru þekktir úr heimi Formúlu 1-kappaksturins. Sá síðarnefndi er stjórnarformaður QPR. „Ég hef nú aldrei hitt þessa ágætu menn og get því voðalega lítið sagt um þá. En ég held nú að þeir ætli sér stóra hluti með þetta félag, annars hefðu þeir aldrei keypt það. Þeir ætla sér að fara upp með félagið og ég held að þeim muni takast það. Þeir virðast tilbúnir að eyða miklum peningi í félagið." Heiðar segir það kærkomið að fá tækifæri til að spila reglulega á nýjan leik en sem fyrr segir hafa tækifærin hjá Bolton verið af skornum skammti auk þess sem hann hefur átt við þrálát meiðsli að stríða á undanförnum misserum. Heiðar skoraði sigurmark íslenska landsliðsins gegn Möltu í gær. „Það var mjög gott að fá að spila aftur enda ekkert spilað að ráði síðan í Skotaleiknum. Leikurinn í gær var fínn og þetta var verðskuldaður sigur sem hefði getað verið stærri."
Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Fleiri fréttir „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Sjá meira