Enski boltinn

Heiðar sagður fara til QPR í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Heiðar Helguson skoraði sigurmark Íslands gegn Möltu í gær.
Heiðar Helguson skoraði sigurmark Íslands gegn Möltu í gær.

Heiðar Helguson er í breskum fjölmiðlum í dag skrifa undir lánssamning við enska B-deildarliðið QPR.

The Mirror heldur því fram að gengið hafi verið frá samningsmálum í gær og verður hann lánaður til félagsins þar til í janúar. Þá gæti komið til greina að QPR kaupi Heiðar á eina milljón punda frá enska úrvalsdeildarfélaginu Bolton.

Heiðar gekkst undir læknisskoðun hjá félaginu í síðustu viku en heyrði svo ekkert frá forráðamönnum QPR. Hann bjóst því allt eins við að ekkert yrði af félagaskiptunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×