eQ Bank með bestu ráðgjöfina í Finnlandi 22. september 2008 13:34
eQ Bank veitir bestu ráðgjöf finnskra greinenda um fjárfestingar í smærri fyrirtækjum sem skráð eru á hlutabréfamarkaði. Þetta kemur fram í „The European Small Caps Research Yearbook 2008" sem óháða greiningarfyrirtækið AQ Research gefur út árlega. eQ Bank er dótturfélag í 100% eigu Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. Í tilkyningu um málið segir að niðurstaðan byggist á hlutlægri mælingu á því hvort ráðleggingar greinenda á tímabilinu 1. apríl 2007 til 31. mars 2008 voru skynsamlegar í ljósi þess hvernig gengi í viðkomandi félögum þróaðist á markaði. Athugunin náði til yfir 100 evrópskra verðbréfafyrirtækja og greiningarfyrirtækja og var litið til greininga þeirra á næstum 1.400 skráðum fyrirtækjum sem eiga það sameiginlegt að markaðsverðmæti þeirra er undir 500 milljónum Bandaríkjadala. Í Finnlandi náði athugunin til greinenda hjá sex fyrirtækjum. Auk þess sem eQ veitti bestu ráðgjöf þessara fyrirtækja á heildina litið reyndist Tomi Tiilola hjá eQ vera þriðji besti greinandinn í Finnlandi á því tímabili sem um ræðir.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Samstarf Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira