Austurrísk bankasamsteypa tapar 42 milljörðum kr. á Íslandi 12. október 2008 10:28
Austurríska bankasamsteypan Erste Group Bank hefur tilkynnt að íslensku bankarnir hafi skuldað henni 300 milljónir evra eða sem svarar til um 42 milljarða kr. Verði uppgjör samsteypunnar fyrir þriðja ársfjórðung endurskoðað af þessum sökum. Erste er þriðja stærsta bankasamsteypa Evrópu og hefur mikil umsvifa í austurhluta Evrópu auk heimalandsins. Hlutir í Erste féllu um 17% við tíðindin fyrir helgina en náðu sér aðeins á strik aftur. Erste reyndi að róa markaðinn með tilkynningu um að tapið af íslensku bönkunum hefði þegar verið tekið til greina þegar samsteeypan gaf út yfirlýsingu um væntingar hennar fyrir þriðja ársfjórðung. Talið er að Erste muni afskrifa strax um helminginn af fyrrgreindri upphæð. Sérfræðingar segja hinsvegar að réttast væri að afskrifa þessa skuld að fullu en slíkt myndi leiða til þess að hagnaður Erste drægist saman um 20% frá því sem væntingar voru um. Samkvæmt tilkynningunni frá Erste dreifist skuldin á alla íslensku bankana þrjá sem nú eru komnir í þrot.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira