Breskir bankar berjast við Philip Green um skuldir Baugs 12. október 2008 10:01
Auðjöfurinn Philip Green er ekki einn um að hafa áhuga á að kaupa skuldir Baugs í Bretlandi. Breskir bankar munu einnig hafa áhuga á kaupunum að því er kemur fram í breska blaðinu Guardian. Í ljós hefur komið að Kaupþing átti hlut í Mosaic Fashion og Jane Norman og Glitnir átti stöðu í House of Fraser, Whistles og Aurum sem aftur á Goldsmiths. Samkvæmt fréttinni í Guardian hafa nokkrir stóriri bankar í Bretlandi áhuga á að kaupa lánasafn Kaupþings í landinu. ""Allar leiðir liggja til Kaupþings," segir háttsettur bankamaður í samtali við Guardian. "Nokkrar viðræður eru í gangi, með hagsmuni hluthafa í huga, þar sem rætt er hvernig hægt er að skipuleggja framhaldið." Ráðgjafafyrirtækið KPMG er nú með fólk bæði í Reykjavík og London sem vinnur hörðum höndum að því að finna lausn á málinu fyrir Baug Group. Eins og fram hefur komið er Philip Green reiðubúinn að nota allt að 2 milljörðum punda eða hátt í 400 milljarða kr. til kaupa á skuldum Baugs gegn hlut í félaginu. Guardian segir að skuldirnar sem tengjast Kaupþingi og Glitni séu um einn milljarður punda af þessari upphæð.
Mest lesið Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Viðskipti innlent Brynja til Fastus frá Samkaupum Viðskipti innlent Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Viðskipti innlent Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Atvinnulíf Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Atvinnulíf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira