Enski boltinn

Poyet ánægður á Englandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gus Poyet, fyrrum aðstoðarþjálfari Tottenham.
Gus Poyet, fyrrum aðstoðarþjálfari Tottenham. Nordic Photos / Getty Images

Gus Poyet hefur gefið í skyn að hann myndi ekki fylgja Juande Ramos til Real Madrid þó svo að það stæði til boða. Hann sé ánægður á Englandi.

Þeir Ramos og Poyet voru reknir frá Tottenham í haust eftir afar slakt gengi en Poyet var aðstoðarmaður Ramos. Þar áður var hann aðstoðarmaður Dennis Wise hjá Leeds.

„Þetta væri stór ákvörðun sem myndi setja mig í erfiða stöðu," sagði Poyet við enska fjölmiðla spurður um hvort hann myndi fylgja Ramos til Real Madrid ef það stæði til boða.

„Það er mjög erfitt að hafna félagi eins og Real Madrid en ég er mjög ánægður á Englandi. Ég bý í Lundúnum og kann afar vel við lífið hér. Ég vonast til að ég geti fundið mér vinnu bráðlega."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×