Formúla 1

Frumsýning hjá Red Bull

mynd: kappakstur.is

Red Bull frumsýndi í dag 2008 bíl sinn á Jerez brautinni á Spáni og kynnti Mark Webber og David Coulhard sem ökumenn sína. Coulthard er aldursforsetinn í Formúlu 1 og þrautseigur, 37 ára gamall ökuþór frá Skotlandi. Webber er frá Ástralíu.



Adrian Newey fyrrum hönnuður McLaren hannaði Reb Bull bílinn frá grunni og Christian Horner liðsstjóri liðsins telur að nýi bílinn sé tilbúinn í að stríða þeim stóru, McLaren og Ferrari.

,,Við vorum að ógna toppliðunum á lokasprettinum í fyrra og æltum að halda uppteknum hætti með nýja bílnum. Ferrari og McLaren verða sterk sem fyrr, en það verður þéttur hópur á eftir þeim og við verðum þeirra á meðal BMW, Williams, Renault og jafnvel Honda og Toyota," sagði Christian Horner íþróttastjóri Red Bull.

Red Bull liðið hefur vaxið hratt síðustu misseri og 570 starfsmenn vinna hjá liðinu. Hönnuðurinn Newey er einn af lykilmönnum liðsins. ,,Ég leik mér ekki að tölum. Aksturi ökumanna manna í brautinni mun segja til um gæði bílsins. Það er hægt að tala um tölur í vindgöngum til að sanna að bíllinn sé betri. En hann er án vafa framfaraskref."

Geoff Wills fyrrum hönnuður Honda er meðal nýrra starfsmanna Red Bull, en síðan hann var látinn fara frá Honda hefur hvorki gengið né rekið hjá liðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×