Formúla 1

Hamilton sáttur við nýja bílinn

MP4-23 bíllinn frá McLaren
MP4-23 bíllinn frá McLaren NordicPhotos/GettyImages

Lewis Hamilton segist nokkuð hrifinn af nýja keppnisbílnum úr smiðju McLaren liðsins í Formúlu 1 sem fengið hefur heitið MP4-23. Hamilton og nýr félagi hans Hekki Kovalainen hafa nú reynsluekið bílnum í fyrsta sinn.

"Það var frábært að fá loksins að prófa hann. Ég sá bílinn ekki fyrr en á mánudaginn og síðan þá hef ég verið mjög spenntur að prófa hann. Það er auðvitað ekki hægt að lesa mikið út úr nokkrum hringjum, en mér fannst hann lofa mjög góðu," sagði Hamilton.

Félagi hans Kovalainen, sem gekk í raðir McLaren frá Renault, segist líka ánægður með bílinn.

"Við fyrstu sýn virðist þetta góður bíll. Vinnslan í honum gefur góð fyrirheit fyrir næsta tímabil," sagði Finninn.

McLaren verður að prófa bíla sína næstu 18 dagana, en fyrsta keppni ársins verður í Ástralíu þann 16. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×