Hálfleiksræða Grant hafði mikið að segja Elvar Geir Magnússon skrifar 2. janúar 2008 10:43 Grant var ekki svona brosmildur í hálfleiksræðu sinni í gær.
Þýski miðjumaðurinn Michael Ballack hjá Chelsea segir að leikmenn liðsins hafi fengið að heyra það frá knattspyrnustjóranum Avram Grant í gær. Chelsea var undir í hálfleik gegn Fulham og lét Grant heldur betur í sér heyra í hálfleiknum. Það virkaði vel því Chelsea vann leikinn á endanum með mörkum Salomon Kalou og svo frá Ballack úr vítaspyrnu. „Það voru ansi mikil læti í hálfleiknum. Við þurftum á þessu að halda," sagði Ballack við The Sun. „Við máttum ekki halda þessari spilamennsku áfram og hlutunum var breytt fyrir seinni hálfleikinn." Chelsea lék án lykilmanna eins og Frank Lampard, John Terry og Didier Drogba sem hafa átt við meiðsli að stíða. Þá eru Kalou, John Obi Mikel, Michael Essien og Drogba á leið í Afríkukeppnina. „Við höfum misst og erum að missa marga leikmenn svo það er mikilvægt að komast í gegnum þetta erfiða tímabil og vera rétt við efstu liðin," sagði Ballack. Ljóst er að Grant ætlar að fá nýja leikmenn í janúar og í gær lýsti Grant yfir dálæti sínu á sóknarmönnunum Nicolas Anelka og Dimitar Berbatov. Ekki er talið ólíklegt að annar þessara leikmanna komi til liðsins í janúar. „Sóknarmenn okkar eru að standa sig vel. Shevchenko er farinn að líta mun betur út og Kalou skorar í nánast hverjum leik. Lið eins og Chelsea ætti samt að hafa fleiri sóknarmenn," segir Grant.
Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira