Enski boltinn

Harte til Blackpool

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ian Harte í leik með írska landsliðinu árið 2006.
Ian Harte í leik með írska landsliðinu árið 2006. Nordic Photos / Getty Images
Ian Harte, fyrrum leikmaður Leeds, gekk í kvöld til liðs við enska B-deildarliðið Blackpool.

Harte samdi við Blackpool til eins mánuðs og verður staða hans endurskoðuð að loknum hverjum mánuði sem hann verður hjá félaginu.

Harte var í níu ár hjá Leeds og fór þá til spænska liðsins Levante. Hann var í eitt ár hjá Sunderland en fór frá liðinu í júní síðastliðnu. Hann var einnig orðaður við lið á Norðurlöndunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×