Jewell hættur hjá Derby Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. desember 2008 11:03 Paul Jewell, fyrrum stjóri Derby. Nordic Photos / Getty Images
Paul Jewell hefur sagt upp starfi sínu sem knattspyrnustjóri enska B-deildarliðsins Derby en hann hefur verið í rúmt ár í starfi. Derby komst óvænt upp í úrvalsdeildina vorið 2007 er liðið var undir stjórn Billy Davies. Hann var rekinn á haustmánuðum í fyrra eftir að liðið byrjaði illa í deildinni og Jewell ráðinn í staðinn. Ekki gekk liðinu betur þá og féll Derby úr deildinni í vor en engu liði hafði áður tekist að fá jafn fá stig í ensku úrvalsdeildinni - ellefu talsins. Derby vann aðeins einn leik á tímabilinu og það undir stjórn Davies. Jewell vann sinn fyrsta deildarleik með Derby í september í haust, tíu mánuðum eftir að hann tók við starfinu. Derby er þó komið í undanúrslit ensku deildarbikarkeppninnar þar sem liðið mætir Manchester United í tveimur leikjum í næsta mánuði. Derby hefur unnið sjö leiki af 26 til þessa í ensku B-deildinni og ákvað Jewell að hætta eftir að liðið tapaði 1-0 fyrir Ipswich á heimavelli í gær. Adam Pearson, stjórnarformaður Derby, sagði í samtali við enska miðla í morgun að litlar líkur væru á því að Billy Davies myndi snúa aftur til félagsins. Chris Hutchings, fyrrum aðstoðarmaður Jewell, mun taka tímabundið við starfinu og sagði Pearson að það kæmi jafnvel til greina að fastráða hann í starfið.
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Sjá meira