Viðskipti erlent

Sheik Al-Thani er með ástríðu fyrir veðhlaupahestum

Sheik Mohamed bin Khalifa Al-Thani sem keypt hefur 5% hlut í Kaupþingi er með ástríðu fyrir veðhlaupahestum. Ræktun þeirra og keppnir með þeim eru helsta áhugamál Al-Thani sem á risastórt hestabú í Katar.

Kaupþing er ekki fyrsta fjárfesting Al-Thani á Íslandi því í sumar keypti hann 12,6% hlut í Alfesca og greiddi 5,5 milljarða kr. fyrir.

Al-Thani er bróðir emírsins í Katar og hefur fjárfest mikið víða um heim fyrir fjölskylduna en hún hefur stjórnar landinu undanfarna eina og hálfa öld.

Al-Thani var um tíma varaforsætisráðherra landsins og um skeið fulltrúi þess í ráðherraráði OPEC, samtaka olíuframleiðsluríkja. Á síðustu árum hefur hann einbeitt sér að fjárfestingastarfsemi víða um heim.

Katar er ein auðugasta þjóð í heimi en hún telur um 800.000 manns. Talið er að um 15% af öllum jarðgasbirgðum heimsins sé að finna í landinu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×