Enski boltinn

Pavlyuchenko tryggði Tottenham sigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roman Pavlyuchenko fagnar marki sínu í dag.
Roman Pavlyuchenko fagnar marki sínu í dag. Nordic Photos / Getty Images
Tottenham vann sinn fjórða sigur í ensku úrvalsdeildinni í dag er Roman Pavlyuchenko tryggði liðinu 1-0 sigur á Blackburn.

Bæði lið gerðu þrjár breytingar á byrjunarliðum sínum frá síðasta leik. Roman Pavlyuchenko kom inn fyrir Luka Modric og þeir Benoit Assou-Ekotto og Aaron Lennon fyrir Gareth Bale og Didier Zokora.

Hjá Blackburn var Benni McCarthy í byrjunarliðinu á nýjan leik, sem og Brett Emerton og Ryan Nelsen sem kom inn fyrir Zurab Khizanishvili.

Leikurinn var ekki nema níu mínútna gamall þegar að Pavlyuchenko kom Tottenham yfir. Aaron Lennon átti góðan sprett upp hægri kantinn og lagði boltann fyrir Pavlyuchenko sem skoraði þar með sitt þriðja úrvalsdeildarmark á tímabilinu.

Tottenham komst nálægt því að auka forskotið stuttu síðar er Pavlyuchenko skallaði í stöng eftir aukaspyrnu David Bentley.

McCarthy fékk svo fínt tækifæri á hinum enda vallarins en skot hans missti marks af stuttu færi.

Undir lok fyrri hálfleiks fékk svo Martin Olsson, varnarmaður Blackburn, að líta sitt annað gula spjald í leiknum og þar með rautt fyrir brot á Lennon. McCarthy mátti sætta sig við að vera tekinn af leikvelli í hálfleik til að fylla í skarð Olsson í vörninni.

Tottenham byrjaði betur í síðari hálfleik en tókst ekki að bæta við forystuna, þrátt fyrir talsverða yfirburði. Það kom þó ekki að sök þar sem Blackburn gerði sig aldrei líklegt til að jafna metin.

Tottenham kom sér úr fallsæti með sigrinum og er nú í fjórtánda sæti með fimmtán stig. Blackburn er hins vegar enn í næstneðsta sæti deildarinnar með þrettán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×