Viðskipti erlent

Fjárfestar glaðir með efnahagsráðgjafa vestanhafs

Miðlarar taka tölurnar niður á bandaríska hlutabréfamarkaðnum.
Miðlarar taka tölurnar niður á bandaríska hlutabréfamarkaðnum. Mynd/AP

Gengi hlutabréfa hækkaði almennt í Bandaríkjunum í dag. Hækkun olíuverðs og bjartsýni fjárfesta á að teymi efnahagsráðgjafa Baracks Obama, verðandi forseta landsins, muni takast að rétta efnahagslífið við eftir hamfarir síðustu mánuði.

Þetta er fjórði dagurinn í röð sem helstu hutabréfavísitölur landsins enduðu í plús.

Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði um sjö prósent í dag og endaði í tæpum 54,5 dölum á fat. Þessi hækkun endurspeglaðist í gengi olíufélaga á borð við Exxon Mobil og Chevron. Exxon hækkaði um 2,5 prósent og Chevron um þrjú prósent.

Þá bendir Bloomberg-fréttaveitan á að verulegur kippur hafi komið í kauphöllum vestanhafs eftir að Obama réð Paul Volcker, fyrrum seðlabankastjóra Bandaríkjanna, til að leiða ráðgjafanefnd í efnahagsmálum. Á meðal annarra manna í fylkingu Obama gegn hremmingum í efnahagsmálum landsins sem varað hafa í rúmt ár eru Tim Geithner, seðlabankastjóri New York-ríkis, sem mun taka við stól fjármálaráðherra af Henry Paulson á nýju ári og Lawrence Summers, sem verður aðalráðgjafi forsetans í efnahagsmálum.

S&P 500-hlutabréfavísitalan, sem þykir endurspegla vel hreyfingar og stemningu á bandarískum hlutabréfamarkaði, hækkaði um 3,5 prósent og endaði í 887,68 stigum. Á fimmtudag í síðustu viku hafði hún ekki verið lægri í ellefu ár.

Þá hækkaði Dow Jones-hlutabréfavísitalan, sem samanstendur af 30 umsvifamestu fyrirtækjum á bandarískum hlutabréfamarkaði, um 2,9 prósent.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×