Fastir liðir eins og venjulega hjá Wenger Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. desember 2008 10:45 Arsene Wenger, stjóri Arsenal. Nordic Photos / Getty Images
Arsene Wenger mun ekki breyta út af þeirri venju að stilla upp ungu liði Arsenal í leikjum liðsins í ensku deildarbikarkeppninni. Arsenal mætir B-deildarliðinu Burnley í fjórðungsúrslitum keppninnar í kvöld en síðarnefnda liðið sló út Chelsea í síðustu umferð. Jóhannes Karl Guðjónsson er á mála hjá Burnley og á ágætan möguleika á því að vera í byrjunarliðinu gegn Arsenal í kvöld. Hann hélt sæti sínu í byrjunarliðinu í tólf deildarleikjum í röð - allt þar til um síðustu helgi er hann kom inn á sem varamaður er Burnley vann 3-0 sigur á Derby. Arsenal vann 3-0 sigur á Wigan í síðustu umferð og þar áður 6-0 sigur á Sheffield United. Wenger stillti upp ungum leikmönnum í þessum leikjum en þeir gætu verið enn yngri í kvöld þar sem að hann ætlar sér ekki að nota neinn af þeim leikmönnum sem voru í byrjunarliði Arsenal í leiknum gegn Chelsea um helgina. „Þeir leikmenn sem voru á bekknum um helgina munu spila. Það þýðir að Silvestre mun spila og Fabianski líka. Aðrir leikmenn úr aðalliðinu munu einnig koma við sögu, til að mynda Vela og Bendtner," sagði Wenger. „En við getum til dæmis ekki notað Djourou. Hann er meiddur og þá er Gallas líka tæpur. Kolo Toure og Emmanuel Eboue eru einnig frá vegna meiðsla." Jay Simpson skoraði tvö marka Arsenal í 3-0 sigrinum á Wigan og hann mun líklega spila í kvöld, sem og hinn 16 ára gamli Jack Wilshere og Aaron Ramsey. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sporti í kvöld og hefst hún klukkan 19.40.
Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira