Salan á hlut sænska ríkisins í Nordea frestast 18. janúar 2008 11:05
Kreppan á fjármálamörkuðum heimsins gerir það að verkum að salan á tæplega 20% hlut sænska ríkisins í stórbankanum Nordea frestast. Og raunar eru líkur á að við núverandi stöðu muni sænska hægristjórnin falla á tíma með söluna. Eins og Vísir hefur áður greint frá hefur finnska tryggingarfélagið Sampo tekið stöðu í Nordea með 10% eignarhlut. Sampo er aftur á móti að stórum hluta í eigu Exista. Björn Wahlroos forstjóri Sampo hefur ítrekað lýst yfir áhuga sínum á því að kaupa hlut sænska ríkisins. Talið er að hann vilji búta bankann upp, selja hluta hans og setjast sem stjórnarformaður yfir því sem eftir verður. Ef salan á eignarhlutnum dregst mikið frameftir árinu gæti svo farið að sænska stjórnin félli á tíma með hana. Samkvæmt könnunum munu jafnaðarmenn ná aftur völdum í Svíþjóð árið 2010 og vitað er að þeir hafa engan áhuga á að selja í Nordea.
Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Icelandair hefur flug til Qaqortoq Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira