Reading tapaði óvænt á heimavelli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. nóvember 2008 17:27 Ívar Ingimarsson í leik með Reading. Nordic Photos / Getty Images
Reading tapaði í dag óvænt fyrir Southampton á heimavelli í ensku B-deildinni í dag. Wolves endurheimti sex stiga forystu sína á toppi deildarinnar. Southampton vann 2-1 sigur á Reading með tveimur mörkum frá Bradley Wright-Phillips. Jimmy Kebe minnkaði muninn fyrir Reading. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn fyrir Reading en Brynjar Björn Gunnarsson kom inn á sem varamaður á 83. mínútu. Reading er þó enn í þriðja sæti deildarinnar með 33 stig en er nú tíu stigum á eftir toppliði Wolves sem vann 2-0 sigur á Blackpool í dag. Birmingham er í öðru sæti en liðið vann 3-2 sigur á Swansea í gærkvöldi. Burnley er enn í fjórða sæti deildarinnar en liðið gerði í dag markalaust jafntefli við Doncaster, þó svo að Steven Thompson, leikmaður Burnley, var rekinn af velli á 31. mínútu. Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrjunarliði Burnley en var skipt af velli á 79. mínútu. Aron Einar Gunnarsson tók út leikbann í dag og lék því ekki með Coventry sem vann 1-0 útisigur á Sheffield Wednesday. Þá var Heiðar Helguson ekki í leikmannahópi QPR sem hann gekk til liðs við í vikunni en liðið tapaði 3-0 fyrir Watford á útivelli. QPR er í tólfta sæti deildarinnar með 25 stig en Coventry í því fimmtánda með 23 stig. Úrslitin í dag: Plymouth - Cardiff 2-1 Burnley - Doncaster 0-0 Charlton - Sheffield United 2-5 Crystal Palace - Bristol City 4-2 Ipswich - Derby 2-0 Preston - Barnsley 2-1 Reading - Southampton 1-2 Sheffield Wednesday - Coventry 0-1 Watford - QPR 3-0 Wolves - Blackpool 2-0
Mest lesið Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Fleiri fréttir Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Sjá meira