Iceland sektað fyrir brot á brunavarnareglugerð 26. apríl 2008 20:50
Breska verslunarkeðjan Iceland, sem er að stærstum hluta í eigu Baugs og Fons, var í gær sektuð um þrjátíu þúsund pund, eða rúmar fjórar milljónir króna, fyrir slælegar brunavarnir í verslun sinni í Nottingham á Englandi. Þetta kemur fram á vefsíðunni This is Nottingham. Upp komst um málið árið 2006 þegar eldur kom upp á jarðhæð verslunarhússins. Starfsfólk á fyrstu hæð verslunarinnar fór upp á þak en þegar það ætlaði að forða sér í brunastiganum kom í ljós að hann var læstur. Fólkinu tóks á endanum að brjóta upp lásinn á stiganum með kúbeini og forða sér fyrir utan einn starfsmann sem komst ekki niður. Honum var bjargað skömmu síðar af slökkviliði. Rannsóknaraðilar í borginni rannsökuðu ástand brunavarna í kjölfarið og komust að því að víða var pottur brotinn og því var fyrirtækið kært. Í viðtali við miðilinn segir yfirmaður brunavarna í Nottingham að þar á bæ séu slíkir hlutir litnir mjög alvarlegum augum. Hann sagðist ánægður með dómsniðurstöðuna og jafnframt viss um að forsvarsmenn Iceland muni halda áfram á þeirri braut sem þeir hafi verið á undanfarið í sambandi við að koma lagi á þessi mál í verslunum sínum.
Mest lesið Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Viðskipti erlent Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur Róbert Aron og Einar Örn taka við rekstri Kolaportsins Viðskipti innlent Vísar ásökunum um samráð á bug Neytendur Þessi í vinnunni sem þykist vita allt og hefur alltaf rétt fyrir sér Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Forstjóri Kaldvíkur lét af störfum í samráði við stjórn Viðskipti innlent Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur