Enski boltinn

Fjórir leikir í kvöld

Elvar Geir Magnússon skrifar
Heskey gæti leikið með Wigan í kvöld gegn sínu fyrrum félagi.
Heskey gæti leikið með Wigan í kvöld gegn sínu fyrrum félagi.

Í kvöld verða fjórir leikir á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni. Leikur Liverpool og Wigan verður í beinni á Sýn 2 en aðrir leikir sýndir á hliðarrásum.

19:45 Newcastle - Manchester City

Frestaður leikur úr níundu umferð. Alan Smith, fyrirliði Newcastle, er mjög tæpur fyrir þennan leik en líklegra er að Michael Owen verði tilbúinn í slaginn. Joey Barton er hinsvegar enn bak við lás og slá og leikur ekki í kvöld.

Hjá City verður Elano líklega á bekknum. Michael Johnson verður fjarri góðu gamni en Emile Mpenza gæti snúið aftur eftir meiðsli.

„Það er frábært að fá Owen aftur. Við höfum farið illa með mörg mjög góð færi í síðustu leikjum en Owen er leikmaður sem skorar úr þeim. Það eru engir landsleikir á næstunni svo vonandi finnur hann sitt gamla form sem fyrst og fer að skora mörk," segir Sam Allardyce, stjóri Newcastle.

20:00 Liverpool - Wigan

Algjör skyldusigur fyrir Liverpool. Peter Crouch snýr aftur eftir þriggja leikja bann. Sami Hyypia er enn frá vegna meiðsla og ólíklegt að hinn danski Daniel Agger sé tilbúinn í slaginn þó það styttist í það. Alvaro Arbeloa verður líklega í hjarta varnarinnar í kvöld.

Emile Heskey gæti snúið aftur í lið Wigan eftir meiðsli og leikið gegn sínum gömlu félögum. Heskey lék ekkert um hátíðarnar vegna ökklameiðsla. Jason Koumas ætti einnig að vera orðinn leikfær.

„Þetta verður ekki auðveldur leikur. Steve Bruce er klókur knattspyrnustjóri. Lið hans er í erfiðri stöðu en hann kann að ná því besta út úr sínu liði," sefir Rafael Benítez, stjóri Liverpool.

20:00 Blackburn - Sunderland

Mark Hughes, stjóri Blackburn, vonast til þess að Steven Reid verði orðinn leikfær en hann gat ekki leikið með gegn Derby vegna meiðsla. Christopher Samba verður líklega ekki með þar sem hann fær frí til að vera viðstaddur fæðingu síns fyrsta barns.

Hjá Sunderland er Ross Wallace tæpur þar sem hann er að glíma við meiðsli. Nyron Nosworthy og Russell Anderson eru á batavegi en það er hinsvegar enn nokkuð í að Carlos Edwards snúi aftur.

„Það er mikilvægt að við skorum á undan í þessum leik. Ef við lendum undir og eltumst við að reyna að jafna gæti þetta verið erfitt. Það er mun betra að ná forystu og hafa þannig stjórn á leiknum," segir Mark Hughes.

20:00 Bolton - Derby

Nicky Hunt er enn að glíma við meiðsli og ólíklegt að Bolton fái að njóta krafta hans í kvöld. Bolton hefur gengið vel á heimavelli í síðustu leikjum og er mun sigurstranglegra liðið í þessum leik.

„Öll lið sem ná að afreka eitthvað hafa sterkan heimavöll. Ef við náum líka í stig á útivöllum þá förum við að klífa upp töfluna. Meðan það gengur svona illa er þá mikilvægt að við séum að vinna leiki heima fyrir," segir Gary Megson, knattspyrnustjóri Bolton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×