Viðskipti erlent

Gæti orðið stærsti slípaði kringlótti demantur í heimi

Námuverkamenn í Lesotho í Afríku hafa fundið demant sem gæti orðið stærsti slípaði kringlótti demantur í heimi. Demanturinn vegur 478 karöt og er sá tuttugasti stærsti sem fundist hefur.

Demanturinn er þannig lagaður frá náttúrunnar hendi að hann gæti gefið af sér slípaðan demant sem væri 150 karöt að stærð. Verðið á slíkum demant myndu hlaupa á nokkrum milljörðum kr.

Clifford Elphick forstjóri félagsins sem á námuna sem demanturinn fannst í segir að gæði hans séu í hæsta flokki hvað varðar lit og gegnsæi.

Stærsti slípaði kringlótti demantur sögunnar er Koh-i-Noor sem er 105 karöt að stærð og tilheyrir bresku krúnunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×