Nýi Glitnir verður að Íslandsbanka á ný 17. desember 2008 16:52 Íslandsbanki varð að Glitni sem varð að Nýja Glitni sem verður Íslandsbanki.
Nýi Glitnir, sem áður hét Íslandsbanki, hefur ákveðið að taka upp gamla nafnið á ný. Nafnabreytingin tekur gildi þann 20. febrúar næstkomandi. „Breytingaferlið, sem mun eiga sér stað á næstunni, var kynnt starfsmönnum bankans í dag en samhliða nafnbreytingunni voru kynntar áherslubreytingar í starfsemi bankans," segir í tilkynningu frá bankanum og sagt að allir starfsmenn bankans muni koma með virkum hætti að stefnumótunarstarfinu. „Á undanförnum mánuðum hafa orðið miklar breytingar í íslensku efnahagslífi. Mikilvægt er að íslenskt bankakerfi komist sem allra fyrst á fullt skrið til þess að styðja við einstaklinga og atvinnufyrirtæki. Stjórn og starfsfólk bankans munu taka þátt í uppgjöri við fortíðina af heilindum og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að liðsinna óháðum aðilum við úttekt á starfsemi undanfarinna ára," segir í tilkynningu frá bankanum og því bætt við að það sé stefna stjórnar bankans að fá erlent ráðgjafafyrirtæki til þess að fara yfir allt innra eftirlit bankans. „Starfsfólk bankans gerir sér fulla grein fyrir því að nafnið Glitnir hefur beðið hnekki í því aftakaveðri sem gengið hefur yfir íslenskt fjármálalíf undanfarna tvo mánuði," segir Birna Einarsdóttir bankastjóri. „Með nafnabreytingunni er þó ekki verið að setja nýjar umbúðir utan um gamla starfsemi, heldur verið að leggja áherslu á að bankinn er í dag fyrst og fremst íslenskur banki. Helsta hlutverk Íslandsbanka verður að þjóna íslenskum heimilum og fyrirtækjum. Því hlutverki ætlum við að sinna af alúð og ábyrgð," segir hún. Breytingin á bankanum gerist ekki á einni nóttu að sögn Glitnismanna og munu þær koma innan frá. „Starfsfólk bankans mun leggjast í mikla stefnumótunarvinnu næstu tvo mánuðina þar sem grunnurinn verður lagður að nýjum banka", segir Birna, og bætir við að markmiðið sé að halda kostnaði vegna nafnabreytingarinnar í lágmarki. Hún segir starfsfólk bankans gera sér fulla grein fyrir að breytingarnar fela í sér miklar áskoranir. Nafnabreytingin verður lágstemmd að hennar sögn og áhersla lögð á að láta verkin tala.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira