Viðskipti erlent

Viðskipti stöðvuð með hluti í Bonusbanken í Danmörku

Viðskipti með hluti í Bonusbanken í Danmörku hafa verið stöðvuð það sem eftir er dagsins. Beðið er yfirlýsingar frá bankastjórn bankans til dönsku kauphallarinnar.

Hlutir í Bonusbanken, sem staðsettur er í Herning, féllu um 24% í morgun áður en þau voru stöðvuð. Í ár hafa hlutirnir fallið um rúmlega 74%.

Danskir fjölmiðlar telja að Bonusbanken sé enn einn bankinn í landinu sem verður gjaldþrota á síðustu vikum og eru þeir þá orðnir fimm talsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×