Viðskipti erlent

Kaupþing í Svíþjóð komið í sölumeðferð

Kaupþing í Svíþjóð er komið í sölumeðferð að því er segir í sænskum fjölmíðlum í morgun. Viðskipti með hluti í bankanum hafa verið stöðvuð í morgun eftir að hlutbréfin féllu um 34% við opnun markaðarins.

Nýjustu fregnir á vefsíðunni di.se herma að Seðlabanki Svíþjóðar íhugi nú að grípa inn í og taka yfir alla strafsemi Kaupþings í Svíþjóð.

Seðlabankinn veitti Kaupþingi lán í morgun upp á 5 milljarða sænskra kr, en það virðist ekki hafa dugað til að róa sænska viðskiptavini bankans. þeir hófu að taka út og loka reikningum sínum í Kaupþingi í gær í töluverðum mæli. Alls eru um 25.000 Svíar með reikninga í bankanum og enn fleiri eru með reikninga í Edge, netbanka Kaupþings.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×