Viðskipti erlent

Fengu ekki nægilegar upplýsingar um stöðu Nyhedsavisen

Morten Lund.
Morten Lund.

Fjárfestingasjóðurinn Draper Fisher Juvertson, segir að ónógar upplýsingar um stöðu Nyhedsavisen hafi leitt til þess að þeir hafi ákveðið að halda að sér höndum við frekari fjármögnun blaðsins. Sú ákvörðun leiddi til þess að blaðinu var lokað.

„Morten Lund (eigandi Nyhedsavisen -innsk. blm) er frjór og spennandi frumkvöðull. Við erum í samstarfi við hann í fleiri verkefnum og það er leiðinlegt að þetta skuli ekki hafa gengið upp," segir Timothy Draper, einn forsvarsmanna sjóðsins, í bréfi til danska viðskiptablaðsins Börsen.

„Morten hafði vonast til að við kæmum með meira fjármagn inn í rekstur Nyhedsavisen. Við þekktum hins vegar ekki nægilega vel til málsins til þess að samkomulag gæti náðst um frekari fjárfestingu," segir Draper.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×