Pavlyuchenko tryggði Tottenham sigur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. nóvember 2008 15:40 Roman Pavlyuchenko fagnar marki sínu í dag. Nordic Photos / Getty Images
Tottenham vann sinn fjórða sigur í ensku úrvalsdeildinni í dag er Roman Pavlyuchenko tryggði liðinu 1-0 sigur á Blackburn. Bæði lið gerðu þrjár breytingar á byrjunarliðum sínum frá síðasta leik. Roman Pavlyuchenko kom inn fyrir Luka Modric og þeir Benoit Assou-Ekotto og Aaron Lennon fyrir Gareth Bale og Didier Zokora. Hjá Blackburn var Benni McCarthy í byrjunarliðinu á nýjan leik, sem og Brett Emerton og Ryan Nelsen sem kom inn fyrir Zurab Khizanishvili. Leikurinn var ekki nema níu mínútna gamall þegar að Pavlyuchenko kom Tottenham yfir. Aaron Lennon átti góðan sprett upp hægri kantinn og lagði boltann fyrir Pavlyuchenko sem skoraði þar með sitt þriðja úrvalsdeildarmark á tímabilinu. Tottenham komst nálægt því að auka forskotið stuttu síðar er Pavlyuchenko skallaði í stöng eftir aukaspyrnu David Bentley. McCarthy fékk svo fínt tækifæri á hinum enda vallarins en skot hans missti marks af stuttu færi. Undir lok fyrri hálfleiks fékk svo Martin Olsson, varnarmaður Blackburn, að líta sitt annað gula spjald í leiknum og þar með rautt fyrir brot á Lennon. McCarthy mátti sætta sig við að vera tekinn af leikvelli í hálfleik til að fylla í skarð Olsson í vörninni. Tottenham byrjaði betur í síðari hálfleik en tókst ekki að bæta við forystuna, þrátt fyrir talsverða yfirburði. Það kom þó ekki að sök þar sem Blackburn gerði sig aldrei líklegt til að jafna metin. Tottenham kom sér úr fallsæti með sigrinum og er nú í fjórtánda sæti með fimmtán stig. Blackburn er hins vegar enn í næstneðsta sæti deildarinnar með þrettán stig.
Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Sjá meira