Evrulán í Eystrasaltsríkjunum kunna að leiða til sænsks bankahruns 12. september 2008 10:01 Hús til sölu í Riga, höfuðborg Lettlands. Af Eystrasaltsríkjunum er ójafnvægi mest í Lettlandi. MYND/AFP
Göran Collert segir í viðtali við e24 að útlitið í Eystrasaltsríkjunum nú minni óþægilega á ástandið í Svíþjóð í upphafi fjármálakreppu tíunda áratugarins og óttast stórtap sænsku bankanna. Collert segir ekki útilokað að sænsku bankarnir þurfi að afskrifa 12 prósent útlána sinna í Eystrasaltsríkjunum. Hagfræðingar sem e24 tala við segja að í versta falli kunni bankarnir að þurfa að afskrifa 15 prósent útlána sinna. Ef svo fer myndu afskriftirnar nema á fimmta tug milljarða sænskra króna. Greiningardeild Swedbank segir þó að ólíklegt sé að hrein útlánatöp bankans nemi meira en 0,5-1,2 prósent útlána í Eystrasaltsríkjunum. Samkvæmt nýrri greiningu Citigroup er því þó spáð að afskriftirnar muni nema 2 prósentum. Fyrr í sumar spáði Merrill Lynch því að útlánatöp í Eystrasaltsríkjunum yrðu allt að 3,5 prósent. Citigroup bendir á til samanburðar að í bankakrísu tíunda áratugarins hafi útlánatöp hjá Handelsbank orðið hæst 2,8 prósent hjá Handelsbanken. Sænskir bankar eru mjög stórir á bankamarkaði í Eystrasaltsríkjunum. Útlán Swedbank í Eystrasaltsríkjunum nema 190 milljörðum sænskra króna og útlán SEB nema 143 milljörðum sænskra króna, eðasamtals nærri 4.400 milljörðum íslenskra króna. Markaðshlutdeild þeirra í Eystrasaltsríkjunum er um 30 prósent. Hinir stóru sænsku bankarnir, Handelsbanken og Nordea, hafa lánað mun minna til Eystrasaltsríkjanna. Collert segir ástæðurnar þær að hátt hlutfall lána heimilanna í Eystrasaltsríkjunum eru í evrum, meðan tekjur þeirra eru í þeirra eigin mynt. Gjaldmiðlar Eystrasaltsríkjanna hafa verið bundnir evrunni, en mikil verðbólga að undanförnu ógnar þessari bindingu, og líkur eru því á gengisfellingum í Eystrasaltsríkjunum. Við gengisfall munu heimilin því ekki geta borgað af lánum, sem bankarnir munu neyðast til að afskrifa. Þá hafa fasteignamarkaðir í Eystrasaltsríkjunum hækkað mikið að undanförnu, en nú hefur loftið tekið að leka úr þeirri blöðru. Fyrir vikið hefur verð veða bankanna fallið í verði.
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira