Viðskipti erlent

Sænski seðlabankinn lánar bönkum 1.000 milljarða króna

Sænski seðlabankinn ákvað í dag að lána þarlendum bönkum 60 milljarða sænskra króna eða sem svarar til tæplega 1.000 milljörðum íslenskra króna. Er þetta gert til að skapa ró á fjármálamarkaðinum í Svíþjóð.

Fjárhæðin sem hér um ræðir verður veitt í formi þriggja mánaða lána til sænsku bankanna. Stefan Ingves, seðlabankastjóri Svíþjóðar, segir m.a. í tilkynningu um þessa innspýtingu á markaðinn að órói sá sem verið hafi á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hafi einnig áhrif í Svíþjóð.

Sænskir bankar séu að vísu í góðri stöðu hvað eignfé varðar og litlar afskrifir. Hins vegar virki markaðir með langtímalán ekki eins vel og vera ætti.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×