Viðskipti erlent

Fjöldi gjaldþrota fyrirtækja í Danmörku sá mesti síðan 1994

Fjöldi fyrirtækja sem urðu gjaldþrota í Damörku í september hefur ekki verið meiri í einum mánuði síðan árið 1994. Alls er um 336 gjaldþrot að ræða sem er aukning um 93% frá september í fyrra.

Mestur fjöldi gjalþrota er meðal byggingarverktaka eða 62 talsins. Í fyrra var þessi fjöldi 25 í september.

Samkvæmt frétt í Politiken er fjöldi gjaldþrota hjá fyrirtækjum frá áramótum orðinn 2.302 talsins. Með einföldum framreikningi þýðir það að fjöldinn verður yfir 3.000 eftir árið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×