Viðskipti erlent

Bandaríkjamenn framlengja banni við skortsölu

Bandarískir eftirlitsaðilar tilkynntu í gærkvöld að þeir myndu framlengja bann við skortsölu á hlutabréfum í fjármálafyrirtækjum sem rennur út í dag.

Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar kemur fram að banninu var komið á fyrir tveimur vikum í aðgerðum til að koma í veg fyrir hugsanlega markaðsmisnotkun og auka tiltrú á fjármálamarkaði.

Aðgerðirnar miðuðu að því að koma í veg fyrir að skortsalar gætu hagnast á verðfalli hlutabréfa í fjármálafyrirtækjum og fólu í sér að vogunarsjóðir og aðrir fjárfestar gerðu grein fyrir skortstöðum sínum.

Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna framlengir bannið til þriðja viðskiptadags eftir að frumvarp um 700 milljarða dollara björgunaraðgerðir verður að lögum, en þó ekki lengur en til 17. október.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×