Viðskipti erlent

Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu

Seðlabanki Evrópu (ECB) tilkynnti í dag að stýrivöxtum bankans yrði haldið óbreyttum í 4,25% þriðja mánuðinn í röð. Var það í samræmi við spár greiningar- og markaðsaðila.

Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að stýrivextir á evrusvæðinu hafa ekki verið hærri í sjö ár. Markaðsaðilar munu fylgjast grannt með þeim skilaboðum sem koma fram í máli Trichet, seðlabankastjóra ECB, á fréttamannafundi sem haldinn er í dag um peningastefnu komandi mánaða.

Reikna má með að þar komi fram að hagvaxtarhorfur hafi versnað síðustu vikur með slæmum fréttum af fjármálamörkuðum heims en að bankinn muni áfram fylgjast grannt með verðlagsvísbendingum en jákvæð tíðindi felist í að nýlegar tölur sýni að farið sé að hægja á hækkun verðlags á svæðinu.

Verðbólga á evrusvæðinu mældist 3,8% í ágúst og samkvæmt bráðabirgðatölum evrópsku hagstofunnar (Eurostat) var verðbólga í september 3,6% og lækkar annan mánuðinn í röð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×