Grétar búinn að skora eitt og leggja upp annað Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. nóvember 2008 16:06 Grétar Rafn Steinsson fagnar marki með Matt Taylor og Jllooyd Samuel á síðustu leiktíð. Nordic Photos / Getty Images
Grétar Rafn Steinsson hefur farið mikinn í leik Middlesbrough og Bolton í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði fyrra mark liðsins og lagði svo það síðara upp en staðan í hálfleik er 2-0. Grétar skallaði aukaspyrnu Matt Taylor í netið en boltinn hafði að vísu viðkomu í Kevin Davies. Markið var þó skráð á Grétar. Þetta mark kom á áttundu mínútu en aðeins mínútu síðar launaði hann greiðann með því að koma boltanum á Matt Taylor, sem lék á einn varnarmann Boro og þrumaði knettinum í netið. Heiðar Helguson fór í vikunni frá Bolton til QPR en hann er ekki í leikmannahópi síðarnefnda liðsins í ensku B-deildinni í dag. Hermann Hreiðarsson er hins vegar á bekknum hjá Portsmouth sem hefur 1-0 forystu gegn Hull eftir mark Peter Crouch. Hermann hefur ekki fengið að spreyta sig í deildinni með Portsmouth síðan 5. október er hann kom inn á sem varamaður á lokamínútu leiks Portsmouth og Stoke. Jóhannes Karl Guðjónsson er í byrjunarliði Burnley sem tekur á móti Doncaster en staðan er markalaus í hálfleik. Ívar Ingimarsson er sömuleiðis í byrjunarliði Reading sem mætir Southampton en síðarnefnda liðið hefur forystuna í hálfleik, 1-0. Brynjar Björn Gunnarsson er á varamannabekk Reading. Aron Einar Gunnarsson tekur út leikbann í dag og er því ekki með Coventry sem mætir Sheffield Wednesday á útivelli í dag.
Mest lesið Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Fleiri fréttir Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Sjá meira