Innlent

Dæmi um "tveir fyrir einn" tilboð í laxveiðiár

Dæmi eru um að tveir fyrir einn tilboð bjóðist nú í laxveiðiár,- nokkuð sem menn muna vart að gerst hafi áður. Talið er að verð á laxveiðileyfum muni fara lækkandi á næstu árum.

Samkvæmt lauslegri athugun Stöðvar 2 er enn hægt að fá lausa daga í nokkrar af betri ánum, og það í júlí, sem ekki hefur þekkst undanfarin ár.

Páll Þór Ármann framkvæmdastjóri SVFR segir að dregið hafi úr eftirspurn eftir dýrari ánum. Hinsvegar séu það yfirleitt veiðileyfi sem seld eru fyrirfram að vetri til. Því hafi menn ekki áhyggjur af þessu sumri en hinsvegar eru áhyggjur til staðar með söluna á laxveiðileyfum á næsta sumri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×