Viðskipti erlent

Örvænting í öllum kauphöllum Evrópu

Örvænting ríkir nú í nær öllum kauphöllum Evrópu þar sem úrvalsvítölur halda áfram að hrapa í dag.

Einna verst er ástandið á Norðurlöndunum og sem dæmi má nefna að C20 vísitalan í Kaupmannahöfn féll um 7% í morgun.

Ástandið er litlu skárra annarsstaðar. FTSE-vísitalan í London hefur fallið um 4,5%, Dax-vísitalan í Þýskalandi hefur fallið um 5,8% og Cac40-vísitalan í Frakklandi um 5%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×