Robinho þreyttur á slúðrinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. desember 2008 11:02 Robinho í leik með Manchester City. Nordic Photos / Getty Images
Robinho segist þreyttur á endalausum sögusögnum um leikmenn sem eru sagðir á leið til Manchester City nú þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. Manchester City hefur ekki átt góðu gengi að fagna að undanförnu og er sem stendur í þrettánda sæti deildarinnar, tveimur stigum frá fallsæti. City hefur verið sagt ríkasta félagslið heims eftir að Abu Dhabi United Group keypti það í haust. Í kjölfarið kom Robinho sem er dýrasti leikmaður Bretlandseyja frá upphafi og sagður launahæsti knattspyrnumaður heims. Robinho hefur þó þótt standa undir væntingum en hann hefur þó engar skýringar á reiðum höndum vegna gengisins í haust. „Það er ótrúlegt að hugsa til þess að liðið skuli vera í fallbaráttu með þennan leikmannahóp," sagði Robinho í samtali við enska fjölmiðla. „Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki ástæðuna fyrir því en þetta er helsta umræðuefnið í búningsklefanum." „Ég tel eina skýringuna gæti verið sú að það er endalaust verið að fjalla um leikmenn sem eru mögulega að koma til félagsins í janúar. Sumir liðsfélaganna minna óttast kannski um eigin framtíð hjá félaginu og það er ekki jákvætt. En það er ekkert við því að gera nema að reyna að láta það ekki hafa áhrif á okkur." Robinho hefur skorað tólf mörk á tímabilinu, þar af ellefu í úrvalsdeildinni. Hann segist þó ekki enn hafa sýnt sitt besta. „Ég verð að segja að ég er ekki fullkomnlega ánægður með eigin frammistöðu. Stuðningsmennirnir hafa ekki enn fengið að sjá hinn sanna Robinho."
Mest lesið „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið Fótbolti Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Handbolti Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Íslenski boltinn UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Sport Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti UFC-bardagakappi lést í svefni Sport Fleiri fréttir United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Sjá meira