Keegan sjöundi fastráðni stjórinn á ellefu árum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. janúar 2008 17:25 Kevin Keegan, nýráðinn knattspyrnustjóri Newcastle. Nordic Photos / Getty Images
Kevin Keegan varð í dag sjöundi knattspyrnustjóri Newcastle sem er fastráðinn hjá félaginu á undanförnum ellefu árum. Síðan að Keegan hætti árið 1997 eftir fimm ára veru hjá félaginu hafa eftirtaldir menn verið fullráðnir knattspyrnustjórar hjá Newcastle: Kenny Dalglish: janúar 1997 - ágúst 1998Ruud Gullit: ágúst 1998 - ágúst 1999Bobby Robson: september 1999 - ágúst 2004Graeme Souness: september 2004 - febrúar 2006Glenn Roeder: febrúar 2006 - maí 2007Sam Allardyce: maí 2007 - janúar 2008 Auk þeirra hafa fjórir menn gegnt stöðu knattspyrnustjóra tímabundið, þar af Nigel Pearson tvívegis á undanförnu ári, bæði áður en Allardyce var ráðinn og eftir að hann var rekinn. Ráðningin kemur talsvert á óvart þar sem Keegan hefur ekki verið verið í stjórabransanum síðan hann hætti hjá Manchester City í mars árið 2005. Á þeim tíma hefur hann rekið knattspyrnuskóla í Glasgow og sagði í viðtali við BBC í október síðastliðnum að ólíklegt væri að hann myndi taka við stjórn knattspyrnuliðs aftur. „Líf mitt hefur tekið breytta stefnu. Það er aldrei að vita enda fæ ég enn tilboð um að taka að mér þessi störf á nýjan leik en ég tók ákvörðun um að gera eitthvað annað við líf mitt." „Ég hef ekki einu sinni horft á fótboltaleik með berum augum síðan ég stýrði Manchester City í síðasta skipti og ég man ekki einu sinni hver andstæðingurinn var." Keegan er einn þekktasti knattspyrnumanna Englands á 20. öldinni. Hann lék til að mynda með Liverpool og Hamburg og varð fjórum sinnum deildarmeistari, einu sinni Evrópumeistari og tvívegis kjörinn knattspyrnumaður ársins í Evrópu. Hann lék einnig 63 landsleiki á sínum ferli. Árið 1992 tók hann svo við Newcastle og var þar við stjórnvölinn í fimm stormasöm ár en eftir það stýrði hann Fulham, enska landsliðinu og Manchester City. Keegan var orðaður við Newcastle í sumar eftir að Mike Ashley keypti félagið sem yfirmaður knattspyrnumála. Keegan tók fyrir slíka ráðningu á meðan Allardyce væri þar við störf. „Það er glórulaust að ráða fyrst Sam Allardyce og svo einhvern sem gæti talinn vera ógnun við hans starf. Það bara virkar ekki," sagði Keegan.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira