Enski boltinn

Ronaldo: Ég er ekki besti leikmaður heims

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ronaldo með Gullboltann í dag.
Ronaldo með Gullboltann í dag. Nordic Photos / AFP

Cristiano Ronaldo fékk Gullboltann afhentan í París í dag fyrir útnefninguna sem hann hlaut frá franska tímaritinu France Football sem knattspyrnumaður ársins í Evrópu.

Við þetta tilefni ítrekaði Ronaldo að hann bæri mikla virðingu fyrir öðrum knattspyrnumönnum.

„Ég sagði aldrei að ég væri besti knattspyrnumaður í heimi," sagði hann. „Ég sagði hins vegar að ég ætti góðan möguleika á þessum verðlaunum. Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir öðrum knattspyrnumönnum. Þeir eru margir sem hefðu getað unnið til þessara verðlauna í ár."

Hann sagði enn fremur að honum liði vel hjá Manchester United en hann var sterklega orðaður við Real Madrid í sumar.

„Ég hef nú spilað með Manchester United í fimm ár og líður mér eins og heima hjá mér hjá þessu félagi. Ég kom mjög ungur til félagsins og hef síðan þá unnið til ýmissa verðlauna, bæði sem einstaklingur og sem hluti af liðsheildinni."

„Í dag hlaut ég þessi verðlaun og er ég mjög ánægður með það. Þetta er árangur erfiðis margra ára en ég er afar metnaðarfullur. Ég ætla mér að halda áfram á þessari braut."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×