NBA: Celtics vann aftur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. maí 2008 09:25 Það var vel passað upp á LeBron James í leiknum. Nordic Photos / Getty Images
Boston Celtics vann í nótt sinn annan sigur á Cleveland á meðan að San Antonio vann loks sinn fyrsta leik gegn New Orleans Hornets. Boston vann Cleveland, 89-73, þar sem LeBron James fann sig engan veginn annan leikinn í röð. Forysta Boston er þar með orðin 2-0 í einvíginu en næsti leikur fer fram á heimavelli Cleveland. Í síðasta leik hitti James úr tveimur af átján skotum sínum. Í nótt hitti hann úr sex af 24 og skoraði 21 stig. Alls var skotnýting Cleveland 35,6 prósent í leiknum. Boston náði tökum á leiknum í öðrum leikhluta er liðið sautján stiga viðsnúningi. Frá upphafi annars leikhluta fram í byrjun þess þriðja skoraði Boston 36 stig gegn tíu hjá Cleveland. Paul Pierce var með nítján stig fyrir Boston, Kevin Garnett þrettán stig og tólf fráköst. Ray Allen skoraði sextán stig. Zydrunas Ilgauskas skoraði nítján fyrir Cleveland. San Antonio vann New Orleans, 110-99, og minnkaði þar með muninn í 2-1 í einvígi liðanna. Sigurinn var afar þýðingarmikill enda hefur ekkert NBA-lið í sögunni náð að vinna einvígi eftir að hafa lent 3-0 undir. New Orleans náði að minnka muninn í 90-88 í fjórða leikhluta en þá fór San Antonio á 11-0 sprett og kláraði leikinn. Tony Parker og Manu Ginobili skoruðu 31 stig hver og Tim Duncan var með sextán stig og þrettán fráköst fyrir San Antonio. Chris Paul var stigahæstur hjá New Orleans með 35 stig og níu stoðsendingar. David West var með 23 stig og tólf fráköst. Fjórði leikur liðanna fer fram á sunnudagskvöldið í San Antonio og verður væntanlega í beinni útsendingu á NBA TV.
NBA Mest lesið Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira