Lán Rússa til Íslands gæti markað breytingar á efnahagskerfi heimsins 8. október 2008 09:16
Fjallað er ítarlega um hugsanlegt lán rússneskra stjórnvalda til Íslands á fréttavef Bloomberg í dag. Þar kemur fram að hér geti verið á ferðinni breytingar á efnhagskerfi heimsins þar sem Rússland skipis stærri sess. Bent er á að hið fjögurra milljarða evra lán Rússa til Íslands sé fyrsta fjárhagslega aðstoð Rússa til NATO-þjóðar. Haft er sérfræðingi hjá fjármálafyrirtæki í Moskvu að þetta sýni styrk rússneska hagkerfisins. Rússar eigi gríðarlegan gjaldeyrisvaraforða, 563 milljónir dollara sem er jafnvirði um 62 þúsund milljarða króna. Slíkt geri Vladímír Pútín kleift að takast á við Bandaríkin á hinum alþjóðlega fjármálamarkaði en Bandaríkin horfi nú fram á mestu fjármálakreppu í landinu frá kreppunni miklu á þriðja áratug síðustu aldar. Ísland að breytast í Kúbu norðursins? Haft er eftir Davíð Oddssyni seðlabankastjóra að aðstoð Rússa muni miklu skipta. „Við höfum ekki fengið mikla hjálp frá góðum vinum okkar á vesturhveli jarðar. Ákvörðun rússneskra stjórnvalda að taka upp viðræður við okkur er vel þegin," segir Davíð. Þá ræðir Bloomberg við Íslending, Ragnar Hannes Guðmundsson, sem segir Ísland vera að breytast í Kúbu norðursins. „Sovétríkin aðstoðuðu Kúbu fyrir nokkrum áratugum og nú ætla þau að bjarga okkur," segir Ragnar. Reyna að bæta samskiptin við Vesturlönd Bent er á að í Rússlandi finni menn þó vel fyrir alþjóðakreppunni því Rússar reiði sig mikið á útflutning olíu og gass en olíuverð hafi lækkað mikið að undanförnu eftir að hafa verið í methæðum í sumar. Þá hafi þurft að loka rússnesku kauphöllinni ítrekað vegna mikilla sveiflna á verði hlutabréfa. Ef Rússar standi þetta af sér geti þeir sýnt efnahagslegan styrk sinn í alþjóðlegu efnahagslífi og minnkandi áhrif Bandaríkjanna, segir Sergei Markov, þingmaður Sameinaðs Rússlands, flokks Pútíns. Undir þetta tekur Larry Summers, fyrrverandi fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sem segir lán Rússa til Íslendinga endurspegla minnkandi hlutverk Bandaríkjanna á alþjóðamarkaði. Þá segir umræddur Markov að með því að lána Íslandi fé aukist áhrif Rússlands og sömuleiðis vilji þeir með því reyna að bæta samskiptin við Vesturlönd vegna deilunnar um Georgíu.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira