Enski boltinn

Larsson segist ekki á leið til Englands

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Larsson í leik með Manchester United fyrir tæpum tveimur árum.
Larsson í leik með Manchester United fyrir tæpum tveimur árum. Nordic Photos / Getty Images

Henrik Larsson segir ekkert hæft í þeim fregnum að hann sé á leið annað hvort til Everton eða Aston Villa sem leika í ensku úrvalsdeildinni.

Enskir fjölmiðlar hafa verið duglegir að birta fréttir þess efnis að Larsson hafi átt í viðræðum við þessi félög. Larsson segir það alrangt.

„Þetta er ótrúlegt. Ég hef lesið svo margar fréttir þar sem ég er sagður vera á leið til Everton eða Aston Villa en ég hef ekki rætt við þessi félög frekar en önnur á Englandi," sagði hann á heimasíðu sinni.

„Þessar fréttir eru rangar og hreinlega alger uppspuni. Ég veit ekki hvaðan þessar fregnir ættu að vera fengnar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×