Innlent

Slökkviliðsmenn björguðu roskinni konu á Akureyri

Slökkviliðsmenn á Akureyri komu roskinni konu til hjálpar í gærkvöldi, áður en hún skaðaðist af reyk, sem lagði um íbúð hennar og fram á stigagang fjölbýlishússins.

Stúlka, sem býr við ganginn, fann reykjarlykt og kallaði slökkvilið á vettvang. Konan hafði verið að baka brauð og lagt það á eldavélina, en uggði ekki að því að straumur var á hellunni.

Gekk hún svo til náða og vaknaði við slökkviliðsmennina, sem reykræstu íbúðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×