Tíu ár frá fyrsta leik Gerrard Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. nóvember 2008 17:52 Steven Gerrard fagnar marki með Liverpool. Nordic Photos / Getty Images
Á morgun verða liðin tíu ár frá því að Steven Gerrard lék sinn fyrsta leik með aðalliði Liverpool. Hann segist vilja fagna áfanganum með því að verða enskur meistari með félaginu. Gerrard var átján ára gamall þegar hann kom inn á sem varamaður þegar að Liverpool vann sigur á Blackburn. „Það er í forgangi hjá mér að sigra í ensku úrvalsdeildinni. Við teljum að við séum nægilega góðir til að gera alvöru tilkall til þess," sagði Gerrard í samtali við enska fjölmiðla. „Við þráum það allir mjög mikið. Ég vil verða meistari því mér hefur aldrei tekist það áður. Ég vil ekki ljúka ferlinum mínum án þess að hafa orðið enskur meistari." Liverpool varð síðast enskur meistari árið 1990 en Gerrard hefur orðið Evrópumeistari í bæði Meistaradeild Evrópu og UEFA-bikarkeppninni með Liverpool, sem og bikar- og deildarbikarmeistari. Liverpool og Chelsea eru sem stendur efst og jöfn að stigum. „Við erum ekki vanir þeirri áskorun sem fylgir því að vera í titilbaráttunni allt tímabilið. Það er annað að vera að berjast um efstu fjögur sætin, þar sem maður hefur efni á því að tapa án þess að það hafi of mikil áhrif." „Hins vegar getur það verið ansi dýrkeypt fyrir lið í titilbaráttunni ef þau til dæmis tapa tveimur leikjum í röð." „En við erum í titilbaráttunni eins og er og ætlum að gera allt sem í okkar valdi stendur að þannig verði það út tímabilið."
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira