Enski boltinn

Gomes að komast í sitt besta form

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Heurelho Gomes í leik með Tottenham.
Heurelho Gomes í leik með Tottenham. Nordic Photos / Getty Images
Heurelho Gomes segir að hann sé óðum að komast í sitt besta form eftir að hafa glímt við meiðsli í mjöðm.

Gomes var keyptur til Tottenham frá PSV Eindhoven í sumar fyrir 7,8 milljónir punda. Honum gekk heldur illa að finna sig í búningi Tottenham í haust en hefur þó haldið hreinu í tveimur leikjum í röð.

Gomes segir að það megi rekja til þess að hann hafi verið að glíma við meiðsli í mjöðm en sé allur að koma til.

„Meiðslin eru mun betri," sagði Gomes í samtali við enska fjölmiðla. „Það var orðið að miklu vandamáli hjá mér. Ég var alltaf með hugann við meiðslin og það hafði áhrif á frammistöðuna."

„En ég er mjög ánægður með tvo síðustu leiki. Það er mjög mikilvægt fyrir markverði að halda markinu hreinu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×