Vidic bjargvættur United Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. desember 2008 19:28 Nemanja Vidic tryggði United sigurinn í dag. Nordic Photos / Getty Images
Nemanja Vidic var hetja Manchester United er hann tryggði sínum mönnum sigur á Sunderland með marki á lokamínútum leiksins. Óhætt er að segja að United hafi verið með yfirburði í leiknum en liðið sótti nánast stanslaust allan leikinn og var allt útlit fyrir að leiknum myndi ljúka með markalausu jafntefli. Alex Ferguson stillti upp sama liði og vann Manchester City í deildinni um síðustu helgi. Það var hins vegar enginn Roy Keane hjá Sunderland enda hætti hann í vikunni. Fjórar breytingar voru gerðar á byrjunarliði liðsins sem tapaði fyrir Bolton um síðustu helgi. Dwight Yorke, El-Hadji Diouf og Anton Ferdinand voru í liðinu á ný og þá var Martin Fulop í markinu í stað Craig Gordon sem er meiddur. Carlos Tevez var ekki í byrjunarliði Manchester United en hann skoraði þrennu í 5-3 sigri United á Blackburn í enska deildabikarnum í vikunni. United var miklu meira með boltann í leiknum en færin voru þó ekki eins mörg í fyrri hálfleik og þeim síðari. Carlos Tevez kom meira að segja inn á sem varamaður snemma í síðari hálfleik en allt virtist koma fyrir ekki. Ronaldo fékk nokkur ágæt færi áður en honum var skipt af velli vegna meiðsla en Dimitar Berbatov fékk frábært færi þegar skammt var til leiksloka. Michael Carrick gaf fyrirgjöfina á Berbatov sem var vel staðsettur stutt frá markinu en skallaði yfir. Stuttu síðar fékk Nemanja Vidic annað gott skallafæri en beint á Fulop í markinu. En þá kom loksins að því. Michael Carrick átti skot að marki sem fór í stöngina og þar var Nemanja Vidic mættur til að hirða frákastið og skora sigurmark leiksins.
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Sjá meira